rauðrófu- & appelsínusalat með pikkluðum rauðlauk


Mynd / Gunnar Bjarki fyrir Gestgjafann

Hráar lífrænar rauðrófur eru stútfullar af steinefnum, vítamínum og trefjum en stökka áferðin passar ótrúlega vel með safaríkum appelsínubitunum. Rauðrófur eru reyndar svakalega öflugar og taldar allra meina bót. Salatið er svo toppað með pikkluðum rauðlauk, grænum ólífum og ristuðum sólblómafræjum. Það gæti ekki verið auðveldara að borða alla regnbogans liti.

UPPSKRIFT

350gr lífrænar rauðrófur, rifnar með rifjárni
4 appelsínur, skornar í bita
2 öskjur Asískt Babyleaf frá Vaxa
1 krukka grænar ólífur, skornar niður
70gr sólblómafræ, ristuð
Ferskar kryddjurtir eftir smekk

Pikklaður rauðlaukur
1/2 bolli rauðvínsedik
1/2 rauðlaukur, skorinn í þunnar sneiðar

Vínagretta
4 msk lífræn hágæða ólífuolía
1 msk afgangs rauðvínsedik frá rauðlauknum
1 sítróna, kreist
S&P


AÐFERÐ

  1. Byrjið á því að undirbúa pikklaða rauðlaukinn með því að skera þunnar sneiðar og hella edikinu yfir. Geymið til hliðar á meðan salatinu er blandað saman.

2. Blandið kálinu, rauðrófunum og appelsínubitunum saman ásamt ólífunum. Ristið sólblómafræin á pönnu í nokkrar mínútur.


Arna Engilbertsdóttir